22.1.2010 | 22:36
Afhverju ekki.
miðað við hvað hefur gerst og í ljósi hvað getur orðið, þá finnst mér þetta nokkuð lítil tala eða varla til að tala um.
Mig langar að sjá mikið strangara aðhald að öllu sem tengist mínu og öryggi minna, því má ekki sigta út þessa fáu sem ( hugsamlega ) ógna öryggi hinna saklausu?
Það versta sem hefur nokkurn tímann komið út frá trú, er ofsatrú sama hver hún er því ofmikið af því (góða) hefur aldrei og verður aldrei gott.
Það eina sem fólk á að sýna sem trú á almannafæri er, trú á sjálfri sér og þeim möguleika að hlutirnir reddast.
Ef þessir smákóngar yrðu loks gerðir útlægir eða jafnvel dæmdir til að afplána saman, væri ekki þá til fullkomið réttlæti.
Lagt til að 47 föngum verði aldrei sleppt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sverrir Þór
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já enn.... er fólk ekki saklaust uns sekt er sönnuð?.........
Síðan fyrir utan að al qaeda er ekki til og hefur aldrey verið til....... Bara tilbúin samtök til að valda ótta og lagalegur grundvöllur til að beyta herafli í öðrum löndum......
http://www.youtube.com/watch?v=mztfFdpd1Rk
Al Qaeda Doesn't Exist (Documentary) - 1
Það er gersamlega út í hött að réttlæta frelsissviftingu án dóms og laga......
En varðandi Trúmálin er ég sammála þér
Gunnar Þórbergur Harðarson (IP-tala skráð) 22.1.2010 kl. 23:50
Ég er að mörgu leyti sammála Gunnari að fólk á að vera saklaust uns sekt sé sönnuð..... Hins vegar er réttarkerfið oft svo meingallað að verstu glæpamenn verða kannski ekki svo auðveldlega sakfelldir. Færustu lögfræðingar ná svo oft að snúa málunum algerlega á hvolf og glæpamennirnir ganga út frjálsir vegna ónógra sannanna,,,, formgalla í málsókn,,, ekki rétt staðið að handtöku eða einhverju enn fáránlegra (við höfum séð fáránleg dæmi hér á Íslandi líka). Það þarf að breyta öllu þessu kerfi til að glæpamenn verði dæmdir sem slíkir án nokkurs múðurs. Kannski þeir séu ekki bara hræddir við að hafa ekki nógu afgerandi sannanir, heldur kannski líka af réttarkerfinu sjálfu sem mundi sjálfsagt bregðast í þessum dæmum.
KA (IP-tala skráð) 23.1.2010 kl. 03:05
Bæði það að menn eru saklausir þangað til sekt er sönnuð, og sérstaklega þetta hér:
Gunnar Ingi (IP-tala skráð) 23.1.2010 kl. 03:56
Kannski vilja þeir ekki að fréttist hversu mikið saklausir einstaklingar hafa verið pyntaðir, patent laust að halda þeim bara að eilífu án tækifæris til að verja sig.
Tóti (IP-tala skráð) 23.1.2010 kl. 12:24
Það er rangt að taka frá fólki öll réttindi og halda því föngnu án dóms og laga. Þá erum við ekki betri en verstu einræðisherrar.
Sama hver á í hlut.Þannig starfar siðmenntað réttarríki. Saklaus uns sekt sönnuð óvéfengjanlega. Gunnar og Tóti hafa lög að mæla.
Þetta er ekki hægt að réttlæta.
Maður spyr: Ef þessir menn eru svona hættulegir ,af hverju er þá ekki búið að lífláta þá ?
Ég hallast að því að yfirhylming eigi sér stað, eitthvað má ekki fréttast en skammt er að minnast Abu Grahib.
Sorglegt
Árni Þór Björnsson, 23.1.2010 kl. 18:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.